Lillerillebjørnhue - Islandsk

45 kr
Lillerillebjørnhue er byrjendavæn húfa með bangsaeyrum sem er bundin undir hökuna. Byrjað er á því að prjóna stroffkant fremst við andlitið, síðan er húfan prjónuð slétt fram og til baka (garðaprjón) með útaukningum fyrir eyru og úrtökum til að móta húfuna að aftanverðu. Því næst er prjónaður garðaprjónskantur neðst á húfuna sem einnig myndar böndin. Að lokum eru hnakki og eyru saumuð saman. Ábending: Þú getur auðveldlega notað garnafgangana þína í húfuna. Hér eru upplýsingar um hversu mikið garn þú þarft ca. í hverja stærð: Merino: ca. 12-15 (12-15) 17-20 (20-22) 23-24 (24-25) g Soft Silk Mohair: ca. 9 (9-10) 10-11 (12-13) 12-13 (13-14) g

Tilkøb af garn?

Jeg vil gerne købe garn til opskriften
Hvilken størrelse ønsker du garn til?
 DKK
  • Køb for 600 kr, og opnå gratis fragt
  • Ved bestilling før kl. 13 sender vi samme dag
Stærðir: 1 (3) 6 (9) 12 - 18 (24) mánaða
Höfuðmál: ca. 33-37 (36-40) 39-44 (43-46) 46-49 (49-51) cm
Það sem þarf: Hringprjónn nr. 3,5, prjónamerki (4 stk) og nál til frágangs
Prjónfesta: 23 l x 34 umferðir = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á prjóna nr. 3,5
Efni: 1 þráður af Knitting for Olive Merino (250 m / 50 g) og 1 þráður Soft Silk Mohair (225 m / 25 g)
Sýnishornið á myndinni er prjónað í Merino - Marcipan og Compatible Cashmere - Nordstrand og Merino - Mørk Okker og Soft Silk Mohair - Mørk Sennep
Magn af garni: Merino: 50 grömm - 1 dokka Soft Silk Mohair: 25 grömm - 1 dokka